Tesla fremstir í rafbílum
Tesla Motors var stofnað af nokkrum verkfræðingum í Kísildalnum árið 2003. Markmiðið var að sýna fram á að rafmagsbilar gætu verið frábærir og í framhaldinu raunhæfur kostur fyrir venjulegt fólk.
Fyrsti bíllinn þeirra Tesla Roadster, kom á götuna snemma árs 2008. Rafmagns sportbíll sem bjó til ný viðmið með drægni uppá 390km á hleðslu og hröðum á pari við ofursportbíla 3,7 sek 0-100km/klst. Roadsterinn varð til þess að stóru bílaframleiðendurnir tóku við sér og fóru að leggja aukna áherslu á rafmagsbíla.
Tesla er leiðandi í rafbílatækninni á heimsvísu og varð það til þess að bæði Bens og Toyota hafa gert við þá samninga um kaup á batteríum og drifbúnaði. Einnig hafa bæði fyrirtækin fjárfest í hlutabréfum í Tesla og það hefur Panasonic líka gert.
Markmið Tesla er að allir sem á annað borð geta fjárfest í bíl geti fengið sér rafbíl. Vegna þess að þróunarvinna er dýr ákvað Tesla að framleiða fyrst dýran sportbíl (u.þ.b. USD 100.000) í fáum eintökum. Næsta skref var að framleiða meðaldýran (u.þ.b. USD 57.000) fjölskyldubíl í fleiri eintökum og að lokum bíl á um USD 30.000 í mjög miklu magni.
Í dag er staðan sú að Tesla Roadster er að verða uppseldur á heimsvísu. Tesla Model S fjölskyldubíllinn kemur á markað sumarið 2012 og er þegar uppseldur fyrir það ár. Í lok árs 2013 kemur Model X á markað. X verður borgarjeppi með aldrifi byggður á og í svipuðum verðflokki og S, í framhaldinu er síðan gert ráð fyrir 1-2 bílum byggðum á grunni S. 2015-2016 er síðan gert ráð fyrir að ódýri bíllinn sem verðu af þriðju kynslóð komi á markað.
Even rafbílar ehf. er með umboð fyrir Tesla Motors á Íslandi. Félagið hefur skrifað undir samning sem tryggir afhendingu eitthundrað eintaka af Model S á fyrsta framleiðsluári bílsins og verða þeir afhentir í síðasta ársfjórðungi 2012.
Even tekur þátt í þjóðarátaki um orkuskipti í samgöngum ásamt fleiri fyrirtækjum og stofnunum ásamt ríkinu og sveitafélögum. Það er trú fyrirtækisins að nauðsynlegt sé að hætta brennslu jarðefnaeldsneytis í samgöngum sem fyrst og takist Íslendingum það hratt feli það í sér mikla hagsæld fyrir þá. Even hefur tekið þá skýru stefnu í þá átt að fyrir íslendinga sé besta og hagkvæmasta lausnin að skipta yfir í hreina rafmagnsbíla.
Mörg rök eru rafmagnsbílum í hag. Helst ber að nefna að Ísland á nóg rafmagn fyrir allann íslenska bílaflotann og gæti þar með sparað ótrúlegan gjaldeyri sem færi annars í bensín og olíur. Önnur rök eru þau að rekstarkostnaður rafmagsbíla er töluvert lægri en hefðbundinna bíla.
Fleiri atriði sem hægt er að nefna eru, engin mengun, skemmtilegri aksturs eiginleikar, hljóðlátari umferð, þægileg heimahleðsla ofl.
Even hefur umboð fyrir margar aðrar tegundir rafmagsbíla og þér er velkomið að kíkja í heimsókn til okkar að Klettagörðum 25.