Tesla á Íslandi

Framtíðin er hjá Tesla

Við viljum hreinna umhverfi og sjálfbæra framtíð. 95% alls flutningakerfis heimsbyggðarinnar er knúið áfram með eldsneyti. Eldsneyti endist ekki að eilífu.

 

Tesla var stofnað með það að markmiði að stuðla að og flýta fyrir skiptingu bílaflota heimsins yfir í sjálfbæra tækni. Rafmagn var rökréttasta og umhverfisvænasta lausnin því minnsta orku þarf til að knýja rafmagnsbíla enda nýtni rafmótora um 90% á móti um 35% í venjulegum vélum.

 

Rafmagn er auðvelt að framleiða með sjálfbærum hætti og jafnvel hægt að gera það heima hjá sér með sólarsellum eða bæjarlæknum.

 

Til marks um stefnu fyrirtækisin býður Tesla öðrum bílaframleiðendum að kaupa hjá sér batterí og tengdan búnað, þann besta á markaði í dag. Þegar eru tvö fyrirtæki með kaupsamninga um búnað frá fyrirtækinu, Mercedes Bens og Toyota.

 

Við hönnun og framleiðslu bílsins var umhverfið haft í huga. Bíllinn er að mestu úr áli í stað stáls til þess að hann sé léttari. Loftmótstaða bílsins er sú lægsta í fjöldaframleiddum bíl 0,22. Engin skaðleg efni eru í lakki bílsins og gert er ráð fyrir a.m.k. 10% betri nýtingu á lakki við málun Model S en tíðkast í iðnaðinum. Og meðal efna sem hægt verður að velja í innréttingu bílsins eru fallin bananalauf. Svo nokkur atriði séu nefnd.

 

© Even rafbilar ehf. | Klettagörðum 25 104 Reykjavík | S. 490 9000 | even@even.is | adm login